Hótel Rauðaskriða
image
Afþreying

Hestaleiga -  Garður í Aðaldal,  leigir út hesta til útireiðar.

Hvalaskoðun - Hvalaskoðun er ótrúleg upplifun. Frá Húsavík, sem er í um 28 km fjarlægð frá Rauðuskriðu, er hægt að fara í hvalaskoðunarferðir. Fyrirtækin Gentle Giants og Norðursigling á Húsavík eru með reglulegar siglingar allt sumarið. Þau veita nánari upplýsingar og bókanir fara fram hjá þeim.

Hjólreiðar - Gestir okkar hafa ókeypis afnot af fjallahjólum og í nánasta umhvefi okkar er fullt af skemmtilegum hjólaleiðum.

Handverk - Handverkskonur milli heiða eru með sölumarkað við Goðafoss. - Kaðlín selur sitt handverk á Húsavík.

Berjatínsla - Á haustin má finna nokkrar tegundir berja í Rauðuskriðu, m.a.; krækiber, bláber og aðalbláber og jafnvel villt jarðarber ef heppnin er með. Gestir okkar hafa ókeypis afnot af berjalandinu.

Sjóstangveiði - Frá Húsavík er hægt að fara í styttri og lengri ferðir á sjóstöng. (Gentle Giants + Norðursigling.)

Gönguferðir/leiðir - Frá Rauðuskriðu eru ýmsar gönguleiðir í fallegri náttúru.




Hótel Rauðaskriða
Aðaldalur
641 Húsavík
Sími: +354 464 3504
Fax: +354 464 3644
hotel@hotelraudaskrida.is


3 stjörnur skv flokkun ferðamálaráðs